Hæ öll,
okkur hefur borist til eyrna að ekki hafi allir fengið fundarboðið sem send voru út rafrænt. Því ákváðum við að setja þetta hér inn líka.
En fyrir neðan er fundarboðið sem var sent 26 mars 2019.
Aðalfundur Félags sumarbústaðaeigenda í landi Indriðastaða
verður haldinn Fimmtudaginn 11. apríl 2019 kl. 19:30 í Kaplakrika í Hafnarfirði.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf:
- skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og umræður um hana,
2. endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar og umræður um þá
3. kosning formanns,
4. kosning annarra stjórnarmanna,
5. kosning varamanna,
6. kosning skoðunarmanna reikninga og varamanna þeirra,
7. framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
8. ákvörðun um árgjald til félagsins,
9. mál sem tiltekin eru í fundarboði,
10. önnur mál.
Kaffi og meðlæti í boði félagsins.
Stjórnin www.indridastadaland.is