Kæru félagar,
Framundan er Verslunarmannahelgin og sem fyrr verðum við með dagskrá á laugardeginum.
Veðurspáinn lítur vel út en alveg sama hvernig veðrið verður þá ætlum við ekkert að láta það trufla okkur og klæðum okkur bara eftir veðri.
Vonandi mæta sem flestir og eiga góða stund í skemmtilegum félagsskap.
Laugardagurinn 4. ágúst:
10:00 Ganga á Stálpastaðaskóg undir forystu Þorsteins Eiríkssonar. Þetta verður ca. 2 klst. göngutúr (fram og tilbaka).
Það eru margir sem ekki hafa komið í skógræktina norðan megin við Skorradalsvatnið. Á gönguleiðinni má t.d. sjá eitt fallegasta núttúrulega „jólatré“ landsins auk þess sem við kíkjum á Stálpastaði og skoðum ljósmyndasýninguna þar. Tiltölulega létt ganga sem ætti að henta flestum.
Lagt af stað frá bílastæðinu við Stálpastaði.
14:00 Leikir á túninu neðst við Hrísásinn undir stjórn Sturlu og Ingólfs. Fyrst og fremst miðað að krökkunum en ekki hefur verið annað að sjá undanfarin ár en að fullorðnir kunni vel að meta. Fastlega má gera ráð fyrir því að þetta verði hin besta skemmtun.
20:45 Kvöldvaka á leiksvæðinu á milli Skógarássins og Stráksmýrarinnar (sami staður og undanfarin ár).
Eins og í fyrra mætir Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) á svæðið og tekur lagið upp úr klukkan 21:00. Eyfi var frábær í fyrra og er ekki við öðru að búast en að hann verði líka flottur núna enda vanur maður í bransum en Eyfi fagnar um þessar mundir 30 ára sólóferli. Ef veður leyfir þá verður kveikt uppí bálkesti.
Sannkölluð „Brekkustemming“ í Skorradalnum.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest um verslunarmannahelgina.
fh skemmtinefndar
Örn
P.S.
Við ætlum að setja upp tjald á leiksvæðinu klukkan 17:00 á föstudeginum 3. Ágúst þannig að ef einhverjir eru lausir á þeim tíma þá væri hjálp mjög vel þeginn. Síðan ætlum við að taka tjaldið niður og taka aðeins til á sunnudaginn klukkan 11:00 – hjálp þá væri líka vel þeginn.